Starfsárið í hnotskurn, tíu ár að baki, ný verkefni í fæðingu og aðildarfélögin okkar í fararbroddi. Hér er samantekt á því sem stóð upp úr.
Nokkur orð frá stjórnarformanni
Ellefta starfsár klasans var um margt sögulegt, við fögnuðum tíu ára afmæli, gáfum út skýrslu um efnahagsleg áhrif ferðaþjónustunnar síðasta áratug og hófum nýjan kafla með klasamódelinu í Grindavík. En árið var jafnframt krefjandi rekstrarlega. Líkt og hjá mörgum aðildarfélögum okkar þurfti að halda vel á spöðunum, forgangsraða og láta hverja krónu vinna.
Í slíku árferði sést hversu miklu máli stöðug verkefni skipta. Alþjóðleg verkefni á borð við Phoenix 4.0, Tourbit og CE4RT hafa verið burðarás í rekstrinum, en um helmingur tekna klasans kemur úr alþjóðlegu og norrænu verkefnafé. Eins og undanfarin ár kom klasinn að skipulagningu og framkvæmd Ferðaþjónustuvikunnar í góðu samstarfi við Ferðamálastofu, SAF, markaðsstofur landshlutanna og Íslandsstofu, auk þess að standa fyrir Degi ábyrgrar ferðaþjónustu og RATSJÁNNI.
Ég þakka Ástu Kristínu framkvæmdastjóra, stjórn og aðildarfélögum samfylgdina og hlakka til komandi starfsárs, þar sem gervigreind og nærandi ferðaþjónusta vísa veginn.
Rannveig Grétarsdóttir
10 Tímamót
Þann 4. september 2025 fögnuðum við tíu ára afmæli klasans, með nýrri stjórn, útgáfu skýrslu um efnahagsleg áhrif greinarinnar 2015 til 2025 og ráðstefnu fullri af innblæstri um ferðaþjónustu til framtíðar.
Hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson kynnti niðurstöður rannsóknar á framlagi ferðaþjónustunnar til hagkerfisins síðasta áratug, á sama tíma og ný stjórn var kjörin til að leiða næsta kafla klasans.
„Á verðlagi ársins 2024 hefur fjárfesting í greinum tengdum ferðaþjónustu hlaupið árlega frá nokkrum tugum milljarða og upp í ríflega 100 milljarða króna þegar mest hefur látið."
Úr Fótspor, tíu ára skýrslunni
„Afkoma í helstu greinum ferðaþjónustu hefur sveiflast mikið á síðustu árum en hefur þó í mörgum tilfellum verið betri en almennt gerist í viðskiptahagkerfinu."
Úr Fótspor, tíu ára skýrslunni
„Til að ferðaþjónustan dafni vel áfram og skapi aukið virði, þó að ferðamönnum fjölgi ekki endilega mikið, þarf samkeppnishæfni í víðu samhengi að vera til staðar."
Úr Fótspor, tíu ára skýrslunni
👥 Samfélag
Þegar Grindavík stóð frammi fyrir sinni stærstu áskorun, sýndi klasamódelið okkar hvernig samvinna getur styrkt samfélag í mótbyr.
27 fyrirtæki tóku þátt í verkefninu „Grindavík, saman í sókn". Þegar heilt samfélag þarf að byggja sig upp aftur dugar ekki að hvert fyrirtæki standi eitt: það sem skilar árangri er að vinna þvert á atvinnulífið, þar sem ferðaþjónusta, sveitarfélagið, sjávarútvegur og önnur atvinnustarfsemi setjast að sama borði.
Aðferðin var einföld í grunninn: skilgreina raunveruleg verkefni með ábyrgðaraðilum og tímalínu og forgangsraða því sem skiptir máli núna frekar en því sem gæti skipt máli síðar. Þannig verður endurreisnin ekki óskalisti heldur vegferð sem byggir á sterkum grunni, því sem samfélagið kann og á fyrir.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum með fjárframlagi í gegnum Byggðastofnun. María Hjálmarsdóttir hjá MH ráðgjöf hefur verið í verkefnateymi verkefnisins frá upphafi.
AI Gervigreind
RATSJÁIN tengdi allar markaðsstofurnar í sameiginlegt verkefni þar sem megináhersla var á gervigreind og að efla samstarf þvert á landshlutana. Í kjölfarið var síðan haldin vinnustofa með þátttakendum frá öllum landshlutum þar sem yfir 100 aðilar í ferðaþjónustu fóru í gegnum fræðslu og jafningjarýni.
RATSJÁIN var unnin í samstarfi við RATA, þar sem Svava Björk Ólafsdóttir kom að skipulagi verkefnisins. Stuðningur við verkefnið kom úr ráðuneyti ferðamála.
🎤 Viðburðir
Ferðaþjónustuvikan fór fram dagana 13. til 15. janúar 2026, þar sem stoðkerfi ferðaþjónustunnar tók höndum saman í metnaðarfullu samstarfi fyrir fyrirtæki í greininni.
Dagskrá vikunnar kynnt á sviðinu í stóra salnum.
Vikan hófst að venju með nýársmálstofu ferðaþjónustunnar þann 13. janúar, þar sem ráðherra setti vikuna formlega. Viðburðurinn fór fram í höfuðstöðvum KPMG og er haldinn í samstarfi KPMG, Ferðaklasans og SAF.
Miðvikudaginn 14. janúar var síðan boðið upp á alvöru hlaðborð viðburða á Hilton Reykjavík Nordica, þar sem meðal annars var fjallað um gervigreind og hagnýtingu tækni, markaðsmál og samtalið við ferðamanninn, öryggi og seiglu, menningar- og sögutengda ferðaþjónustu, ásamt hraðstefnumótum um ráðstefnuhald, ferðatækni, öryggi og sjálfbærni.
Ferðaþjónustuvikunni lauk svo með Mannamótum, þar sem fyrirtæki af landsbyggðinni heimsóttu höfuðborgina og buðu upp á sannkallaða veislu í Krónunum í Kópavogi.
Nýársmálstofan um framtíð greinarinnar til 2040 sló aðsóknarmet. Umræðuefnið: hvert stefnir greinin og hvernig undirbúum við okkur best, saman.
Samstarfsaðilar að Ferðaþjónustuvikunni eru markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.
Nýársmálstofa · Gervigreind og tækni · Ferðatæknimót · Mannamót markaðsstofa landshlutanna.
Utan vikunnar sjálfrar hélt klasinn nokkur stefnumót við félagana á árinu, þar sem málin eru rædd og hugmyndir reifaðar í minni hópum.
💡 Nýsköpun
Evrópuverkefnið Phoenix styður fjölbreytt fyrirtæki í ferðaþjónustu með allt að 25.000 evru styrk hvert. Fimm verkefni hlutu brautargengi á árinu.
Umfang
Hvert fyrirtæki fær beinan fjárstuðning, um 3,6 m.kr., til að hrinda eigin verkefni í framkvæmd.
Samstarf
Verkefnin eru unnin með samstarfsaðilum, innlendum eða erlendum, sem styrkir tengslanet fyrirtækjanna út fyrir landsteinana.
Áherslur
Stafræn umbreyting, sjálfbærni í rekstri og aukinn viðnámsþróttur eru rauði þráðurinn í öllum verkefnunum.
Tímalína
Verkefnin eru unnin á níu mánuðum, svo áhrifin af styrkjum ársins koma fram á komandi starfsári.
Hvert verkefni er samstarf tveggja til fimm aðila og er leitt af ferðaþjónustufyrirtæki. Hér eru fyrirtækin fimm sem hlutu styrk, ásamt stuttri lýsingu á verkefninu og tengingu þess við meginmarkmið PHOENIX 4.0.
Þjálfunar- og öryggiskerfi fyrir áhafnir sem kemur í stað pappírsmiðaðra gátlista og gefur stjórnendum og skipstjórum rauntímayfirlit yfir hæfni starfsmanna á milli báta. Kerfið sameinar nýliðafræðslu, öryggisæfingar og hæfnisskráningu, aðgengilegt bæði á sjó og landi. Meðal samstarfsaðila eru Sea Safari, Whale Watching Akureyri og Ferðamálastofa, sem tryggir að lausnin nýtist víðar en hjá einum rekstraraðila.
Markaðs- og þjónustuverkefni fyrir gönguleiðina milli Dettifoss og Ásbyrgis, eina bestu og aðgengilegustu gönguleiðina utan hálendis, sem hefur hingað til verið lítið þekkt. Leitt af eigendum Hótel Skúlagarðs í samvinnu við Mývatnsstofu og hópferðabíla. Leiðin er kynnt á alþjóðlegum markaði sem „The Canyon Trail" gegnum vefsíðu, kort, samfélagsmiðla og samstillt auglýsingaátak, ásamt því að þróa trúss, gistingu og leiðsögn.
Stafrænt skráningar- og eftirlitskerfi fyrir hestaferðaþjónustu á Íslandi, hannað til að einfalda rekstur og efla velferð hrossa. Kerfið sér um daglega skráningu, áhættustýringu og gæðaeftirlit og gerir kleift að skila gögnum beint til MAST á stafrænan hátt með möguleika á opinberri birtingu sem sönnun á ábyrgri starfsemi. Ferðamenn krefjast í auknum mæli gagnsæis um dýravernd og sjálfbærni.
Stafrænt forrit hannað til að breyta umferð í gesti á Selasetri Íslands, einum þeirra staða sem flestir aka framhjá þrátt fyrir að um 1.900 bílar fari þar daglega. Forritið nær til ferðamanna á leið með efni, sögur og hvata til að stoppa. Sniðmátið er byggt til að vera auðvelt í endurtekningu fyrir aðra landsbyggðarstaði sem standa frammi fyrir sömu áskorun um að vera óþekktir við veg.
Ferðaþjónustuverkefni á bújörð sem sameinar staðbundna matvælaframleiðslu, matarmenningu og stafrænar sögur til að skapa einstaka sveitaupplifun á Íslandi. Byggt á samstarfi milli Syðra-Holts og bakarís þróar verkefnið nýja þjónustu fyrir gesti sem tengist landbúnaðarsögu svæðisins. Markmiðið er að efla efnahagslega seiglu landsbyggðarrekstraraðila með fjölbreyttum upplifunum sem tengja gesti beint við staðbundin matvælakerfi og landslag.
Við erum ótrúlega spennt að fylgja þessum verkefnum eftir næstu níu mánuði og segja ykkur frá framvindunni.
Ólöf Ýrr Atladóttir er einn af verkefnastjórum PHOENIX og Magdalena Falter hefur komið að verkefninu frá upphafi í ýmsum verkþáttum.
ÁBF Ábyrgð
Í apríl var deginum fagnað með kynningum og verðlaunaafhendingu, meðal annars í samtali Ástu við Frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Íslandshótel hlutu að þessu sinni viðurkenningu fyrir sitt framlag til ábyrgrar ferðaþjónustu.
Verðlaunahafar ábyrgrar ferðaþjónustu ásamt forseta Íslands.
Dómnefnd valdi þrjú fyrirtæki úr innsendum tilnefningum sem þóttu skara fram úr, Íslandshótel, Sky Lagoon og Tanni Travel og héldu þau öll stutta kynningu á sinni vegferð. Íslandshótel þótti skera sig úr fyrir heildstæða og markvissa nálgun á sjálfbærni sem endurspeglast í stefnu, daglegum rekstri og ákvarðanatöku fyrirtækisins: öll hótel félagsins hafa hlotið Green Key vottun og Íslandshótel varð fyrst íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja til að undirrita Glasgow-yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsaðgerðir í ferðaþjónustu.
Dagurinn hófst á sófaspjalli Ástu við Frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem lagði mikla áherslu á velsæld þjóðar og hversu miklu máli ferðaþjónusta skiptir í að skapa störf, efla samfélagið og stuðla að aukinni náttúruvernd og sjálfbærni.
🔥 Nýsköpun
Ferðaklasinn og Lava Show tóku höndum saman og buðu upp á alþjóðlegan viðburð í Nýsköpunarvikunni sem bar heitið „Circular Innovation on Fire", skýrt dæmi um hvernig hringrásarhugsun og sköpunargleði fara saman og tengjast ferðaþjónustu.
✈ Á alþjóðavettvangi
Árið tók okkur víða, á ITB í Berlín, á BOLD Unconference í Vínarborg, á Arctic Circle í Reykjavík og víðar, ávallt með gervigreind og sjálfbærni ofarlega á dagskrá.